Innskráning

Veður
Leitarvélar

10. mars kl. 19.50

Vetrargleði í Þórbergssetri á fæðingardegi Þórbergs

$header  
Þórbergur Þórðarson.

Dagskrá verður í Þórbergssetri næstkomandi föstudag 12. mars og hefst  kl 20:30. Samkór Hornafjarðar ætlar að flytja þar söngdagskrá, en einnig ætla þau Pétur Gunnarsson og Soffía Auður Birgisdóttir að kynna nýjar bækur um og eftir Þórberg. Flytja á stutta dagskrá um ála, og gæða sér síðan m.a.  á reyktum ál frá Ara frænda frá Reynivöllum. Dagskráin er liður í vetrarhátið í Ríki Vatnajökuls. Opið verður inn á sýningar í lok dagskrá, en þar er nú m.a. ný sögusýning um landnám í Skaftafellssýslum og myndasýning af ferðalagi í Veðurárdali.

Meira

10. mars kl. 18.45

Sjálfstæðismenn ekki fram í Vík

Sjálfstæðismenn ekki fram í Vík

Sjálfstæðismenn munu ekki bjóða fram lista í Mýrdalshreppi í sveitarstjórnarkosningum í vor. Sveitarstjórnarfulltrúi flokksins segir ástæðurnar vera ágreining meðal flokksmanna um veglínu í bænum, og stöðu Sjálfstæðisflokksins á landsvísu í kjölfar hrunsins. Nýlega samþykkti Mýrdalshreppur tillögu að nýju aðalskipulagi vegna fyrirhugaðra framkvæmda við sjóvarnargarð og nýrrar veglínu þjóðvegarins. Tveir af þremur sjálfstæðismönnum í hreppsnefndinni í Vík sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar þar sem þau eru mótfallin veglínu um Víkurfjöru og Dyrhólaós. Þau gera athugasemdir við að ekki sé komið til móts við umhverfissjónarmið skipulagslaga.

Meira

10. mars kl. 09.53

Jörð skelfur enn undir Eyjafjallajökli

Jörð skelfur enn undir Eyjafjallajökli

Skjálftavirknin í Eyjafjallajökli tók aftur kipp í nótt og hviða smáskjálfta mældist þar milli kl. 03:40 og 05:20. Nokkrir skjálftar voru um og yfir 2 á Richter, sá stærsti 2,6. Almannavarnir hafa ekki aflétt óvissustigi vegna Eyjafjallajökuls.

Meira

10. mars kl. 09.38

Framsóknarlisti samþykktur á Hornafirði

Framsóknarlisti samþykktur á Hornafirði

Framboðslisti framsóknarmanna og stuðningsmanna þeirra í sveitarfélaginu Hornafirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor var einróma samþykktur á almennum félagsfundi Framsóknarfélaganna í Austur-Skaftafellssýslu í gærkvöldi.

Meira

10. mars kl. 08.50

Ómeidd eftir bílveltu

Ómeidd eftir bílveltu

17 ára stúlka slapp ómeidd eftir að hafa velt bíl sem hún ók á Gaulverjabæjarvegi í gærkvöld. Lögregla hafði gefið henni stöðvunarmerki eftir að bifreið hennar mældist á 139 kílómetra hraða, en hún sinnti því ekki og ók 4 kílómetra til viðbótar og endaði aksturinn með því að hún ók út af veginum. Stúlkan meiddist ekki en var til öryggis flutt til Reykjavíkur til skoðunar. Bíllinn er ónýtur.

Meira

09. mars kl. 15.54

Um fjórar ferðir á dag til Eyja

Um fjórar ferðir á dag til Eyja

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur lagt drög að ferðaáætlun Herjólfs vegna siglinga í Landeyjahöfn í sumar, samkvæmt beiðni Vegagerðarinnar. Gert er ráð fyrir fjórum til fimm ferðum milli lands og Eyja á dag yfir sumarmánuðina en þremur til fjórum á öðrum árstímum.

Meira

09. mars kl. 09.53

Klausturkeppnin endurvakin

-skráning hefst að kvöldi 10. mars

Klausturkeppnin endurvakin

Ein fjölmennasta íþróttakeppni og langstærsta akstursíþróttakeppni sem haldin hefur verið hérlendis, Klausturskeppnin svokallaða, verður endurvakin á Kirkjubæjarklaustri um komandi hvítasunnuhelgi. Keppt verður í sex klukkustunda þolakstri á mótorhjólum. Hátt í 500 keppendur tóku þátt í síðustu keppni sem var haldin árið 2007. Vélhjólaíþróttaklúbburinn og Mótorhjóla- og snjósleðasamband Íslands standa að keppninni ásamt landeigendum.

Meira

Fréttir á landsvísu
Mest lesið

20. júlí kl. 07.24

Brennisteinslykt af Jökulsá á Sólheimasandi

Mikil brennisteinslykt hefur verið úr Jökulsá á Sólheimasandi undanfarna daga, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli. Skjálftavirkni hefur verið undanfarna daga í Eyjafjallajökli. Almannavarnir fylgjast með gangi mála þar ásamt Veðurstofu Íslands. Ekki hefur verið talin ástæða til frekari rástafana að svo komnu máli en áfram verður fylgst vel með. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á Hvolsvelli.

Meira
Áhyggjur af vatnslögn til Eyja

Mýrdalshreppur samþykkir sjóvörn og veglínu

Dregur enn úr skjálftavirkni

Klausturkeppnin endurvakin

Um fjórar ferðir á dag til Eyja

Pistlar
Stjórnmál

22. febrúar kl. 14.34

Brotamanni vísað úr landi

Brotamanni vísað úr landi

Útlendingastofnun hefur vísað pólskum manni úr landi vegna margvíslegra afbrota. Lögreglan á Selfossi handtók manninn í síðasta mánuði vegna innbrota. Við rannsókn vaknaði grunur um að hann ætti hlut að nokkrum innbrotum á Selfossi og á Hvolsvelli auk líkamsárása.

Meira

20. júlí kl. 07.19

Kristinn H. Gunnarsson skrifar:

Inn í ESB til að bjarga ríkisstjórninni

Inn í ESB til að bjarga ríkisstjórninni

Ákvörðun Alþingis í síðustu viku þess efnis að sækja um aðild að Evrópusambandinu er dapurleg. Samþykktin er fengin fram með atkvæðum þingmanna Vinstri grænna, sem segjast vera andvígir málinu sem þeir studdu og þeir boða andstöðu við þann samning sem væntanlega verður gerður. Það gera þeir til þess eins að tryggja að flokkurinn verði áfram í ríkisstjórn.

Meira
Íþróttir
Mannlífið

29. júlí kl. 23.39

3. deild karla:

Gríðarlegir yfirburðir gegn Augnabliki

Unnu 13:0 og eru búnir að tryggja sér sæti í úrslitum

Gríðarlegir yfirburðir gegn Augnabliki

Það verður seint sagt að KFS hafi lent í vandræðum í leikjum sínum gegn Augnabliki í sumar.  Fyrsti leikur liðanna endaði 6:0 fyrir KFS, útileikurinn endaði 1:5 fyrir KFS og í kvöld unnu Eyjamenn 13:0 hvorki meira né minna.  Yfirburðir KFS í leiknum voru algjörir en staðan í hálfleik var 5:0.  Sigur KFS hefði í raun getað verið mun stærri því marksúlurnar björguðu gestunum nokkrum sinnum.

Meira

09. janúar kl. 14.33

Bókaflóðið:

Jöfn og góð sala hjá Vestfirska forlaginu

Tveir Sunnlendingar meðal höfunda.

Jöfn og góð sala hjá Vestfirska forlaginu

Vestfirska forlagið gaf út tíu bókatitla á nýliðnu ári undir samheitinu Bækurnar að vestan.

Hallgrímur Sveinsson, forleggjari á Þingeyri segir að ekki sé annað sjáanlegt en að nokkuð jöfn og góð sala hafi verið í þeim, að vanda.

Klassískar bækur forlagsins eins og Frá Bjargtöngum að Djúpi og 99 vestfirskar þjóðsögur seljist alltaf vel, en þeir bókaflokkar hafa komið út í mörg ár.

 

Meira
Sass