Innskráning

Veður
Leitarvélar

22. júlí kl. 20.19

Hitað upp fyrir Þjóðhátíð á útvarpsstöðinni Suðurland FM 96,3

Hægt að hlusta á þáttinn á netinu á www.963.is

Hitað upp fyrir Þjóðhátíð á útvarpsstöðinni Suðurland FM 96,3  

Frá miðvikudeginum 29. júlí til föstudagsins 31. júlí verður sérstakur upphitunar útvarpsþáttur fyrir Þjóðhátíð 2009 kl. 13-16 á Suðurland FM 96,3. Þátturinn, sem er í umsjá Bessa Hressa og Vignis Egils, nefnist Í brekkunni og verður öllu til tjaldað til að koma fólki í rétta gírinn.

Hugmyndin að þættinum fengu þeir félagar fyrir Þjóðhátíð í fyrra, en þeim fannst vanta útvarpsþátt sem þennan til að hita fólk upp. Þeir félagarar þekkja vel til á Þjóðhátíð og hafa verið tíðir gestir undanfarin ár, Bessi sem umboðsmaður og starfsmaður við hljóðkerfi og Vignir sem skemmtikraftur - en aðallega sem almennir Þjóðhátíðargestir.

Þátturinn verður, eins og áður segir, á Suðurland FM 96,3, miðvikudag til föstudags fyrir Þjóðhátíð kl. 13-16 og einnig er hægt að hlusta á þáttinn á netinu www.963.is. Þá mögulegt samstarf við Þjóðhátíðarútvarpið, en það verður kynnt síðar. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um þáttinn og koma á framfæri upplýsingum á Facebook-síðu þáttarins.

Fréttatilkynning.

Athugasemdir
 
Nauðsynlegt er að vera skráður notandi til að skrá inn athugasemdir. Þú getur skráð þig inní kerfið hér til hliðar undir innskráning. Ef þú er hinsvegar ekki orðin notandi er nauðsynlegt að nýskrá sig hér.
Sass